03 desember 2006

Nýr linkur!

Ég var að bæta við bloggsíðu FLÍSS en fyrir þá sem ekki vita þá er þetta Félag um leiklist í skólastarfi. Mæli eindregið með því að þið fylgist með og auðvitað ættu allir að skrá sig!

18 október 2006

Yahoo Drama Groups

Það eru allskonar samfélög á netinu eins og fram hefur komið en ég er búin að koma mér í einn doldið sniðugan sem er í Yahoo Groups og er yfirskriftin Drama Games and Activities. Þetta er vefsamfélag þar sem skipst er á hugmyndum og rætt er um leiklistarleiki, æfingar, tækni ofl. Allir meðlimir fá mánaðarlegt fréttabréf með nýju efni og tilvonandi viðburðum fyrir þennan hóp ásamt fréttum af síðu David Farmer sem ég er mjög hrifin af líka.
Ég "hitti" meira að segja skólasystur mína úr leiklistarskólanum útí London sem hafði líka skráð sig í sama hóp og hún býr í Wales!

08 október 2006

Vefrallý á netinu!

Ég náði því miður ekki að uppfæra rallýsíðurnar vegna þess að það hefur ríkt ófremdarástand niðrí skóla en það er verið að flytja okkur í kennaranáminu um hæð og fáum við því mikið meira pláss - húrra! En fyrir vikið var lítið um tölvusamband og aðstaðan ekki góð til að vinna mikið! Ég mun þó uppfæra þessar síður fljótlega!

Nemendarallý um Alfred Hitchcock

Kennararallý um Alfred Hitchcock

04 október 2006

Krúið í LHÍ ...

Ég er búin að setja myndir af nokkrum nemendum LHÍ inná Flickr albúmið mitt hér til hliðar!
Það voru nú ekki allir jafnsjúkir í að pósa fyrir mig en það er allt í lagi ... ég kem þeim á óvart einn daginn múahahahahahaa
Kíkið á þetta!

26 september 2006

Hrollvekja á sviði?


Myndin var tekin héðan

Ég er að vinna að verkefni í skólanum um meistara Hitchcok en við eigum að nota búa til nokkuð sem heitir opið vefrallý en vefrallý er ákveðin aðferð sem kennarar geta notað til að kenna ákveðið efni og í leiðinni kenna nemendum að nýta sér netið til að leita sér þekkingar.Það er
ferlega gaman að kafa ofaní hrollvekjurnar aftur enda gat ég varla slitið mig frá þessum myndum á unglingsárunum (kannski ástæðan fyrir brjálæðislegri paranoiu minni að vera ein þegar myrkvar ... þá er ofvirka ímyndunaraflið mitt ekki vinsælt). En ég ákvað nú samt að búa til þetta kennsluefni fyrir krakka á framhaldsskólastigi - ég vona að ég smiti þau ekki af óstjórnlegri taugaveiklun minni !! Ég mun setja inn linka á þetta vefrallý þegar það verður fullunnið en það verða 2 útgáfur af því þ.e. verkefnið sjálft eins og nemendur myndu sjá það og svo er önnur útgáfa sniðin að kennurum sem mögulega hafa áhuga á að nota vefrallýið í sinni kennslu.



20 september 2006

Líkamsmynd Barna


Ég flutti fyrirlestur í dag í sálfræði ásamt Þórdísi Evu Þorleiksdóttur um Líkamsmynd Barna. Við töluðum helst um það hvað mótar líkamsmynd barna og hvað við getum gert til að bæta hana.

Ég minntist aðeins á
margverðlaunaða rannsóknarverkefnið The Body Image Project þar sem notuð var leiklist til að kanna líkamsmynd 9-11 ára barna og að hjálpa þeim að öðlast heilbrigðari sjálfsmynd. Endilega kíkið á verkefnið hérna...

19 september 2006

Oktober Films kynnir ...

Smá preview af nýju myndinni minni ...

Klikkið á Preview - The New Short Film þegar þið eruð komin inná síðuna!!






Free Online Forum Umræður
Free Forums by Bravenet.com